Hlutu heiðursviðurkenningar alþjóðlega Friðarhlaupsins

Hrefna formaður KA og Eiríkur Björn bæjarstjóri veita viðurkenningunum viðtöku.
Hrefna formaður KA og Eiríkur Björn bæjarstjóri veita viðurkenningunum viðtöku.

Í gær, fimmtudaginn 13. júlí, voru Hrefnu G. Torfadóttur, formanni KA og Eiríki Birni Björgvinssyni bæjarstjóra á Akureyri veitt samfélagsverðlaun Friðahlaupsins, Kyndilberi friðar. Þessi heiðursverðlaun eru veitt einstaklingum ,,sem hafa unnið þrotlaust óeigingjarnt starf í þágu betra samfélags“.

Hrefna formaður fékk viðurkenninguna m.a. fyrir áratuga félagsstarf og einnig stuðning við Friðarhlaupið frá upphafi þess á Íslandi. Meðal þeirra sem áður hafa fengið þessa heiðursviðurkenningu má nefna móður Teresu, Vigdísi Finnbogadóttur, Nelson Madela og Carl Lewis.

Afhending þessi fór fram á KA svæðinu þar sem börn af leikjanámskeiði KA tóku við Friðarkyndlinum, en Friðarhlaupið er aðili að alþjóðlegu ári ungmenna sem Sameinuðu þjóðirnar og UNESCO standa að. Friðarhlauparnarnir hér hlaupa hringinn í kringum landið og er þetta 20 manna hópur frá um 13 löndum.

Þess má til gamans geta að Torfi Leósson, forsvarsmaður Friðarhlaupsins, setti upp til gamans og sýndi börnunum af leikjanámskeiðinugullpening þann er hann vann með C-liði KA á Esso-móti sennilega árið 1989 (eða 1990).