Ísland - Frakkland í Nýjabíói

Leikur Íslands og Frakkalands um gullið á Ólympíuleikunum verður sýndur í Nýjabíó í fyrramálið. Leikurinn við Spán var sýndur í gær og var húsfylli og stemmingin ólýsanleg. 

Húsið opnar klukkan kl 07:00 í fyrramálið og leikurinn hefst kl 07:45. Dabbi Rún bíóstjóri lofar geggjaðri stemmingu og að sjálfsögðu verður hægt að fá sér popp og kók í morgunmat.

Komum öll saman og styðjum "Strákana Okkar" í fyrramálið í Nýjabíó kl 07:00 !!!!!