Íþróttahús KA 20 ára á þriðjudaginn!

Íþróttahús KA var vígt þann 18. október árið 1991 og verður það því 20 ára næstkomandi þriðjudag. Margir merkir íþróttaviðburðir hafa verið haldnir í þessu húsi og var það á árum áður helsta ljónagryfja landsins í handboltanum. Í tilefni afmælisins og að húsið hefur nú verið endurnýjað umtalsvert (nýtt gólf og nýir bekkir) verður smá afmælishátíð á þriðjudaginn og hefst hún kl. 18. Verður þá íþróttahúsið opið öllum og boðið upp á veitingar og svo verður hægt að leika sér í salnum.

Við hvetjum KA-fólk og Akureyringa alla til að líta í heimsókn í KA-heimilið á þriðjudaginn kl 18.00.