Íþróttamaður KA kjörinn 11. janúar

Kjöri á íþróttamanni KA verður lýst sunnudaginn 11. janúar n.k. Það er hefð að lýsa kjörinu á afmæli félagsins eða í kringum það en félagið verður 81. árs þann 8. janúar. Aðalstjórn hefur nú tilkynnt hverjir eru tilnefndir sem íþróttamenn KA 2008:


Frá blakdeild:
Piotr Slawomir Kempisty og Una Margrét Heimisdóttir.

Frá júdódeild: Ingþór Örn Valdimarsson.

Frá knattspyrnudeild: Matus Sandor og Arnar Már Guðjónsson.

Frá handknattleiksdeild: Arna Valgerður Erlingsdóttir og Unnur Ómarsdóttir.

Samkoman er opin öllum KA - mönnum og hefst hún kl 14. Boðið verður upp á vetingar að loknu kjöri.