Jarðarför: Sigurbjörn Sveinsson Fv. varaformaður KA jarðsettur í dag

Sigurbjörn Sveinsson
Sigurbjörn Sveinsson

Sigurbjörn Sveinsson, fyrrverandi varaformaður KA verður jarðsettur í Akureyrarkirkju kl 13.30 í dag. 

Sibbi eins og við kölluðum hann alltaf var varaformaður KA frá 2010 – 2014. Þar á undan var hann í stjórn knattspyrnudeildar KA og einnig í unglingaráði þess.
Sibbi var KA maður fram í fingurgóma og var alltaf boðinn og búinn til að leggja sitt af mörkum fyrir félagið, hvort sem það var við stjórnarstörf eða önnur störf eða þá að elda dýrindis kjötsúpu ofan í svanga stjórnarmenn. Til Sibba var alltaf hægt að leita og tók hann öllu af sinni einstöku ljúfmennsku.
Genginn er góður drengur og traustur félagi. Hans verður sárt saknað.
Blessuð sé minning hans.
Ég vil fyrir hönd Knattspyrnufélags Akureyrar senda ástvinum Sibba okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Hrefna G. Torfadóttir, formaður KA