Jón S. Arnþórsson
Jón S. Arnþórsson, formaður Knattspyrnufélags Akureyrar á árunum 1980 til 1983, er látinn, 79 ára að aldri.
Jón lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1951 og cand. phil. prófi frá Háskóla Íslands
árið 1952. Lengstaf sinni starfsævi starfaði hann fyrir Samband íslenskra samvinnufélaga. Jón stofnaði Iðnaðarsafnið á Akureyri og
veitti því forstöðu fyrstu árin. Jón hlaut Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2008 fyrir framlag sitt til varðveislu
íslenskrar verkkunnáttu og safnamenningar. Jón var virkur í ýmsum félagsstörfum. Þannig var hann forseti JC á Íslandi,
umdæmisstjóri Rotarýhreyfingarinnar á Íslandi og í stjórn Leikfélags Akureyrar. Auk þess að gegna formennsku í KA um
þriggja ára skeið lagði hann félaginu lið með ýmsum öðrum hætti og var alla tíð dyggur stuðningsmaður þess.
Knattspyrnufélag Akureyrar sendir Giselu Rabe-Stephan, eftirlifandi eiginkonu Jóns og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Félagið minnist
Jóns S. Arnþórssonar með virðingu og þökk.