Jonni á leið heim frá Eyjum.

Þær góðu fréttir voru að berast af Jónatan Magnússyni að honum líður vel og ekkert alvarlegt að. Hann er kominn af sjúkrahúsinu og var að labba út í flugvél í Eyjum og kemur norður á eftir. Talið er að ástæða verksins sem hann fékk í gær tengist verkjalyfjum sem hann hefur tekið vegna þeirra meiðsla sem hann hefur glímt við að undanförnu.