04.04.2011
KA-menn taka á móti KR-ingum í síðasta leiknum í Lengjubikarnum í fótbolta nk. föstudagskvöld kl. 19.15 í Boganum.
KR-ingar eru á mikilli siglingu og hafa unnið alla sex leiki sína í Lengjubikarnum og eru þegar búnir að tryggja sér sæti í
undanúrslitum keppninnar. KA-menn verma hins vegar botnsæti riðilsins með fjögur stig - jafntefli gegn Selfyssingum og sigur á Þór í
síðasta leik.