KA leitar eftir nýjum íþróttastjóra

Aðalstjórn Knattspyrnufélags Akureyrar, KA, auglýsir til umsóknar starf íþróttastjóra félagsins. Íþróttastjóri er lykilhlutverk í starfsemi félagsins og heyrir beint undir framkvæmdastjóra.

Starfið hentar einstaklingi sem hefur sterka tengingu við íþróttir, skilur virkni íþróttafélaga, er með sterka leiðtogahæfileika, sýnir frumkvæði og hefur góða samskiptahæfni. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Um er að ræða fullt starf með sveigjanlegum vinnutíma. Launakjör eru samkeppnishæf.

 · Helstu verkefni og ábyrgð  · Menntunar- og hæfniskröfur

 · Umsjón með ferðum félagins og tryggja góð samskipti milli deilda.

 · Halda utan um bókanir og skipulag íþróttastarfs í mannvirkjum KA.

 · Utanhald um fjáraflanir, aðstoða við heimaleiki og styrkja umsóknir.

 · Samskipti við Akureyrarbæ, skóla, ÍBA og sérsambönd ÍSÍ í samvinnu við framkvæmdastjóra.

 · Umsjón og vinna við fyrirmyndarfélag ÍSÍ, ferðajöfnunarsjóð og tilnefningar til ÍBA/ÍSÍ.

 · Vinna við umsjón varðandi mótahald félagsins, viðburði, Abler og leikjaskóla.

 · Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast starfsemi félagsins.

 · Reynsla innan úr íþróttahreyfingunni og þekking á starfsemi íþróttafélaga.

 · Háskólamenntun sem nýtist í starfi æskileg en ekki skilyrði.

 · Góð tölvukunnátta, þekking á Abler er kostur. Uppsetning á kynningum og skýrslugerð.

 · Leiðtogafærni, frumkvæði og skipulagshæfileikar.

 · Samviskusemi, nákvæmni og góð hæfni í mannlegum samskiptum.

 

Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2026. Umsóknir skulu sendar á póstfangið saevar@ka.is og þurfa þær að innihalda starfsferilskrá ásamt ítarlegu kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi.

Nánari upplýsingar veitir Sævar Pétursson (saevar@ka.is - 690-4232), framkvæmdastjóri KA.

KA er fyrirmyndarfélag ÍSÍ og starfrækir knattspyrnudeild, handknattleiksdeild, blakdeild, fimleikadeild, júdódeild, lyftingadeild og spaðadeild. Hjá félaginu er lögð sérstök áhersla á barna og unglingastarf auk afreksstarfs og eru einstaklingar og lið á vegum félagins í efstu deildum sinnar íþróttar á landsvísu. Félagsstarf er mikið og leggjum við mikla áherslu á að það sé gaman í KA.