Siguróli og Hjalti fá til sín þá Óla Stefán Flóventsson og Jónatan Magnússon í KA Podcastinu þessa vikuna og ræða þeir félagar ýmsa kanta á sínu starfi hjá KA. Óli Stefán fer yfir síðustu leiki sem og framhaldið í fótboltanum og þá ræðir Jonni nýliðinn vetur hjá KA/Þór sem og komandi tíma hjá karlaliði KA í handboltanum.
Um að gera að hlusta á þennan skemmtilega þátt, þá minnum við á að þátturinn er aðgengilegur á Podcast veitu iTunes.