KA Podcastið: Sævar ræðir uppbyggingu KA svæðisins

Sævar fer yfir skýrslu starfshóps Akureyrarbæjar
Sævar fer yfir skýrslu starfshóps Akureyrarbæjar

Hlaðvarpsþáttur KA heldur áfram göngu sinni og að þessu sinni mætir Sævar Pétursson framkvæmdarstjóri KA í stúdíó-ið. Sævar ræðir meðal annars nýja skýrslu um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri en Sævar segir til að mynda að hagkvæmast væri að byggja upp aðstöðu KA í einu.

Þá ræðir hann einnig stöðuna á knattspyrnuliði KA en liðið hefur leik á Bose mótinu á laugardaginn þegar strákarnir sækja Breiðablik heim. Einnig fer hann yfir nokkra möguleika er koma að því að lengja tímabilið í fótboltanum sem hefur verið þó nokkuð í umræðunni að undanförnu.

Við hvetjum ykkur eindregið til að hlusta á þetta áhugaverða spjall enda skiptir uppbygging KA svæðisins okkur öllu máli.