KA bandið heitt !

Laugardagskvöldið 12. janúar var mikil veisla í KA heimilinu og var hún hluti af 80 ára afmælisfagnaði félagsins. Veislan var hin glæsilegasta og samdóma álit allra viðstaddra að hún hafi verið frábær skemmtun.

Meðal annarra kom fram hljómsveit félagsins, KA bandið en þetta var í annað skipti í sögunni sem hljómsveitin tróð upp. Sveitina skipa formaður félagsins, Árni Glover Jóhannsson (bassi), og bræður hans Stefán Page (gítar) og Eiríkur Lord (hljómborð) svo og Hannes Bonham Karlsson, formaður handknattleiksdeildarinnar sem leikur á trommur.

Í afmælinu lék hljómsveitin nokkur lög og í uppklappslaginu var fyrrum þjálfari handknattleiksliðs KA, hinn ástsæli Atli Hilmarsson kallaður upp á svið til að
syngja einkennislag sitt, Fiskinn hennar Stínu.

Á Youtube vefnum er nú hægt að sjá myndband með hluta af gjörningi
hljómsveitarinnar. Smelltu hér til að nálgast það. Einnig er hægt að sjá myndir frá því að hljómsveitin spilaði hér . Myndirnar tók Þórir Tryggva.