KA Blackpool Cup meistarar 2007

Strákarnir í A-liði KA í þriðja flokki gerðu sér lítið fyrir og urðu Blackpool Cup meistarar árið 2007 í aldursflokki undir 16 ára. Strákarnir unnu skoskt lið í úrslitaleik mótsins í dag, annan dag páska. KA-strákarnir voru yfir nær allan leikinn, en á síðstu sekúndum leiksins náðu Skotarnir að jafna í 1-1. En okkar menn höfðu betur í vítaspyrnukeppni og niðurstaðan varð 6-5 fyrir KA.

Hreint frábær árangur okkar drengja og gefur til kynna hversu sterkur og samstilltur þessi hópur er. Hin tvö KA-liðin stóðu sig líka prýðilega í mótinu og var C-liðið t.d. hársbreidd frá því að komast í undanúrslit.
Ástæða er til að óska þriðja flokks strákunum og þjálfurum þeirra, Pétri Ólafssyni og Steingrími Eiðssyni, til hamingju með þennan stórgóða árangur!

Hópurinn er væntanlegur til landsins í kvöld og verður kominn norður snemma í fyrramálið.