KA Dagurinn á sunnudag - félagið 82. ára þann 8. janúar

Áfram KA!
Áfram KA!
Það var kaldan janúardag árið 1928, nánartiltekið 8. janúar, sem Knattspyrnufélag Akureyrar var stofnað af nokkrum ungum drengjum á heimili Axels Schiöth, bakara, í innbænum. Þá óraði örugglega ekki fyrir því hvernig rættist úr þessu litla félagi sem hefur skipað sér sess í íþróttasögunni sem eitt af stærstu félögum Íslands. Félagið hefur átt góða spretti í öllum deildum sínum og m.a. orðið íslandsmeistari í knattspyrnu 1989, íslands og bikarmeistarar í handknattleik og blaki auk fjölda titla í júdó. Áður fyrr var einnig skíðadeild og frjálsíþróttadeild. Þann 8 janúar verður þetta félag okkar hvorki meira né minna en 82. ára og verður því fagnað n.k. sunnudag kl 14:00.

Hefð hefur skapast fyrir því að lýsa kjöri á íþróttamanni KA þennan dag, en það var Sandor Matus markvörður KA í knattspyrnu sem var kjörinn í fyrra. Auk þess verður margt annað á dagskrá s.s. ræða dagsins frá KA - manni, annáll ársins 2009 sem stjórnarmenn hafa tekið saman o.fl. Einnig verður boðið uppá veglegt afmæliskaffi í tilefni dagsins. Allir KA menn eru hvattir til þess að láta sjá sig og fagna um leið 82. ára afmæli KA.

Á morgun birtist svo sérstakur afmælispistill Gunnars Níelsson hér á síðunni þar sem hann mun skrifa um "vin sinn KA".



Formaður félagsins Stefán Gunnlaugsson á afmælinu í fyrra.

Þessi eru tilnefnd til Íþróttamanns KA:

Blakdeild
Auður Anna Jónsdóttir

Auður er aðeins 16 ára en engu að síður er hún langstigahæst í allra leikmanna í MIKASA DEILDINNI eftir fyrstu 4 umferðirnar með 79 stig skoruð.  Auður spilaði með U19 ára landsliði Íslands á NEVZA mótinu í Danmörku í október Auður er án efa ein allra efnilegasta blakkona sem komið hefur fram hjá Blakdeild KA. 

Piotr Slawomir Kempisty
Piotr var valinn besti leikmaður 1. deildar karla 2009 valin af leikmönnum og þjálfurum deildarinnar.  Piotr er stigahæstur í MIKASA deild karla eftir fyrstu fjórar umferðir þessa keppnistímabils. 

Handknattleiksdeild
Martha Hermannsdóttir

Martha hefur verið fyrirliði í meistaraflokksliði KA/Þór í vetur en liðið keppir að nýju í efstu deild.  Martha er lykilmaður og foringi liðsins í vörn og sókn, æfir vel og er fyrirmynd yngri stelpnanna í liðinu.  

Arna Valgerður Erlingsdóttir

Arna Valgerður er einn efnilegasi leikmaðurinn í meistaraflokki og leikur einnig með 3.fl.þar sem hún er kjölfestan í liðinu.  Hún hefur leikið með U-20 ára liði Íslands á árinu.

Júdódeild
Helga Hansdóttir
.
Helga er næst stigahæsta júdókona ársins á Íslandi og var valin efnilegasta júdókona ársins 2009. Hún hlaut m.a. gullverðlaun í fullorðinsflokki -57kg á Íslandsmóti og Landsmóti  UMFÍ. Hún hlaut gullverðlaun í flokki 15-16 ára -57kg  á Íslandsmóti og gullverðlaun í opnum flokki á Opna danska 15 – 16 ára. Einnig hlaut hún gullverðlaun í fullorðinsflokki -57kg á Kyumóti JSÍ ásamt því að vinna til fleiri verðlauna á árinu.

Knattspyrnudeild
Haukur Heiðar Hauksson

Haukur Heiðar var kosinn besti leikmaður KA í knattspyrnu keppnistímabilið 2009. Haukur Heiðar var fastamaður í landsliði Íslands u/19 ára. Þrátt fyrir að vera ungur að árum hefur hann vakið mikla athygli og ef hann heldur áfram að styrkjast sem leikmaður er eflaust stutt í að hann vekji áhuga erlendra liða.