KA dagurinn var haldinn á laugardaginn frá 11 - 13. Deildir félagsins voru með kynningar á starfsemi sinni, innheimtu æfingagjalda og sölu á varningi tengdum deildunum.
Þá var einnig boðið uppá kynningu á æfingum frá blakdeild og handknattleiksdeild niðurí íþróttasal og júdódeild var með sína kynningu í júdósal.
Þá var gestum boðið uppá kaffi, Frissa og vöflur og mæltist það mjög vel fyrir.
Dagurinn heppnaðist í alla staði mjög vel, en fjöldi foreldra, iðkenda og félagsmanna leit við og kynnti sér það sem boðið var uppá.
Myndir frá deginum eru komnar inní myndasafnið, sem hægt er að fara í með því að smella á myndir hér vinstramegin á síðunni.