Nokkur hundruð könnur komu í KA heimilið í dag en könnurnar voru seldar í apríl til styrktar knattspyrnudeildar. Það er ekki annað
hægt að segja en að KA-menn hafi tekið vel í söluna því fjöldinn er gríðarlegur! Stjórnarmeðlimir og
sjálfboðaliðar knattspyrnudeildar voru í óða önn í dag að flokka könnurnar svo að hægt sé að koma þeim út til
þeirra sem eiga í hlut. Það var vægast sagt mikið verk.
Könnurnar eru merktar með nöfnum með KA logoinu að framan. Vonandi verðar einhverjar ómerktar til afgangs sem seldar verða í KA-heimilinu fyrir
þá sem hafa áhuga. Þetta er mikilvægur liður í fjáröflun deildarinnar. Ljósmyndari síðunnar var á svæðinu og
tók myndir af sjálfboðaliðunum í dag. Myndirnar getur þú séð með að smella
hér.
Gassi að taka upp könnur...