Nú er nýlega lokið leik KA og Þórs. Leikurinn var minningarleikur um fyrrverandi formann Þórs, Guðmund Sigurbjörnsson. Eftir venjulegan leiktíma var staðan jöfn 2-2, því þurfti að framlengja og var staðan jöfn eftir framlenginu. Þá var gripið til vítaspyrnukeppni sem endaði með sigri KA 5-4.
Þessi leikur var síðasti æfingarleikurinn fyrir mót sem hefst í næstu viku. Nánari umfjöllun er að vænta á næstu dögum.