Miðjumaðurinn Örn Kató Hauksson sem á föstudaginn fór á heimaslóðir í KA á eins mánaðar lánssamningi lék sinn fyrsta leik fyrir KA í nokkurn tíma í kvöld en endurkoman var ekki jafn ánægjuleg og hann hafði búist við.
Kató var í byrjunarliði KA í Akureyrarslagnum gegn Þórsurum í þriðju umferð VISA-bikarsins en hann fékk högg á höndina þegar rétt rúmar fimm mínútur voru liðnar af leiknum og varð hann strax sárþjáður.
Hann fór í myndatöku eftir leik og kom í ljós að hann er handleggsbrotinn og mun því gangast undir aðgerð í á morgun.
Ekki er vitað nákvæmlega hversu lengi hann verður frá en það mun væntanlega taka einhvern tíma fyrir beinið að gróa svo þessi mikli baráttujaxl verði leikfær á ný. Við sendum honum baráttukveðjur!