KEA hefur endurnýjað styrktarsamninga við Knattspyrnufélag Akureyrar og Íþróttafélagið Þór. KEA mun áfram verða
einn af aðalstyrktaraðilum félaganna en um er að ræða heildarsamninga sem taka til allra deilda félaganna og gilda til eins árs.
Halldór Jóhannsson undirritaði samninginn fyrir hönd KEA, Sigfús Helgason fyrir hönd Þórs og Hrefna G. Torfadóttir fyrir hönd KA.
Halldór segir að hér sé um að ræða framhald á þeim stuðningi sem KEA hafi veitt félögunum á undanförnum
árum, KEA sé ákaflega stolt af því að styrkja íþrótta- og æskulýðsstarf á
félagssvæðinu. Sigfús og Hrefna segja að styrktarsamningurinn við KEA sé mjög mikilvægur fyrir
íþróttafélögin og efli verulega íþrótta- og æskulýðsstarf á Akureyri. Virkir
íþróttaiðkendur hjá Þór og KA eru hátt í tvö þúsund talsins.