Fram kom í máli Lúðvíks að á undanförnum árum hafi orðið mikil þróun í keppnisgrasvöllum og til marks um það hefðu örfá erlend fyrirtæki framleitt slíkt gras, en nú væru þau ótal mörg. Jafnframt hefðu gæði slíkra valla stórlega aukist og til marks um það fjölgaði þeim félögum í Skandinavíu sem hefðu lagt velli sína keppnisgrasi. Hann nefndi nokkur dæmi um þetta í Noregi, Finnlandi og Svíþjóð, en gleggsta dæmið er að Elfsborg, sem er í fremstu röð knattspyrnuliða í Svíþjóð og varð sænskur meistari 2006, spilar sína heimaleiki á keppnisgrasi. Þá nefndi hann að allir leikir á heimsmeistaramóti U-20 í Perú fyrir tveimur árum hafi verið spilaðir á keppnisgrasi og FIFA hafi nú opnað á þann möguleika að leikir verði spilaðir á slíku grasií úrslitakeppni HM í Suður-Afríku að tveimur árum liðnum. Lúðvík sagði það alveg ljóst að náttúrulegt gras væri alltaf besti kosturinn á knattspyrnuvelli á Íslandi í þrjá mánuði á ári, þ.e. yfir sumartímann, en hins vegar væri í sínum huga alveg ljóst að eitt stærsta hagsmunamál íslenskrar knattspyrnu væri lenging leiktímabilsins og það yrði aldrei gert nema með því að byggja upp fleiri velli með keppnisgrasi. Það væri í raun forsenda fyrir lengingu keppnistímabilsins á Íslandi, sem nú væri ca. fjórir og hálfur mánuður, en til samanburðar spiluðu Færeyingar sína deild á sjö mánuðum og þar væru allri vellir lagðir keppnisgrasi. Eins og komið hefur fram hefur KA samið við Akureyrarbæ um uppbyggingu félagssvæðis KA og er við það miðað að framkvæmdir hefjist í haust. Í þeim samningi er gert ráð fyrir uppbyggingu vallar með keppnisgrasi á félagssvæðinu, en nánari útfærsla verður í höndum verkefnahóps á vegum Akureyrarbæjar og KA, sem verið er að mynda þessa dagana.
Fréttina skrifaði Óskar Halldórsson