Kristján Sturluson hefur verið ráðinn íþróttastjóri KA og hefur nú þegar hafið störf. Kristján býr yfir víðtækri reynslu úr atvinnulífi og íþróttastarfi en hann hefur starfað sem sérfræðingur hjá Gallup, verkefnastjóri hjá SÍMEY og síðastliðið ár sem svæðisfulltrúi hjá Svæðisstöð íþróttahéraða á Norðurlandi eystra.
Kristján hefur um árabil verið virkur í starfi KA, hann hefur setið í foreldraráði og yngriflokkaráði knattspyrnudeildar og verið öflugur sjálfboðaliði, meðal annars í grillhöll KA á heimaleikjum meistaraflokks karla í knattspyrnu.
Þá situr Kristján í stjórn hokkídeildar Skautafélags Akureyrar og hefur víðtæka reynslu úr íshokkíhreyfingunni. Hann hefur meðal annars sinnt hlutverki liðsstjóra með yngri landsliðum Íslands undanfarin ár og fór í apríl með A-landsliði karla á HM í Búlgaríu.
Kristján er með BA-gráðu í sálfræði, kennsluréttindi og diplómu í jákvæðri sálfræði.
KA býður Kristján hjartanlega velkominn til starfa og hlakkar til samstarfsins.

Á sama tíma þökkum við Siguróla Magna Sigurðssyni kærlega fyrir frábæra samvinnu en Siguróli lét af starfi íþróttastjóra KA fyrr á árinu eftir að hafa skilað af sér frábæru starfi í rúmlega ellefu ár. Við erum þó ákaflega heppin að njóta áfram krafta hans í félaginu en hann kemur nýr inn í stjórn handknattleiksdeildar og verður Kristjáni innan handar til að komast inn í nýja starfið fyrst um sinn.
Siguróla voru þökkuð góð störf á aðalfundi KA á dögunum og sést hér með þeim Arnari Gauta Finnssyni skrifstofustjóra KA og Sævari Péturssyni framkvæmdarstjóra KA. Ágúst Stefánsson markaðs- og viðburðarstjóri félagsins tók myndina en saman hafa þeir fjórir stýrt daglegum rekstri félagsins og verður spennandi að fá Kristján inn í þetta öfluga teymi á sama tíma og Siguróla verður sárt saknað.