Kæru félagar
Mig langar til að þakka þeim fjölmörgu sem sáu um glæsilega afmælisveislu KA, í KA-heimilinu sunnudaginn 16. janúar. Þakkir til þeirra sem sáu um dagskrána, tóku þátt í henni, til þeirra sem sáu um veitingarnar og þeirra sem sáu til þess að allt í sambandi við veitingar og veisluna gengi upp.
Mig langar einnig að þakka þeim fjölmörgu gestum sem komu í afmælisveisluna. Það gladdi KA-hjartað mjög að sá þvílíkan fjölda KA-manna samankominn.
Með KA kveðju
Hrefna G. Torfadóttir
formaður KA