Leikjaskólar KA hafnir með krafti

Það er líf og fjör í leikjaskólum KA í Nausta- og Giljaskóla
Það er líf og fjör í leikjaskólum KA í Nausta- og Giljaskóla

Í sumar er KA með tvo leikjaskóla og fóru þeir af stað með krafti nú í vikunni. Það er komin ansi góð reynsla á leikjaskólana hjá okkur og hefur þessi fyrsta vika gengið afskaplega vel. Börnin eru ánægð og njóta þess að taka þátt í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá.

Við leggjum áherslu á að börnin fái útrás fyrir leikgleðina í alls konar íþróttum, leikum og hreyfingu innandyra. Einnig er lögð áhersla á rólegri stundir með perlum, spilum og skapandi listum þannig að við leggjum mikið uppúr því að hafa eitthvað fyrir alla.

Skólarnir eru eins og áður segir tveir en Leikjaskóli KA fer fram í íþróttahúsinu við Naustaskóla og þá fer Leikjaskóli Fimleikadeildar fram í fimleikahúsinu við Giljaskóla. Hægt er að skrá í eina viku í einu eða fleiri.

Leikjaskólinn í Naustaskóla

Leikjaskólinn fer allur fram í íþróttahúsinu við Naustaskóla. Mæting er við inngang íþróttahússins.

Skólinn opnar 08:00 á morgnanna og er skólanum lokið 12:15 hvern dag.

Umsjónarmaður Leikjaskólans er Íris Rún Gunnarsdóttir

Skólinn er eingöngu fyrir krakka fædda 2014-2019

Smelltu hér til að opna skráninguna á Abler

Dagskrá leikjaskólans er eftirfarandi
Vika 1 : 10.-14.júní
Vika 2: 16.-20.júní (ath 17.júní er frídagur)
Vika 3 : 23.-27.júní
Vika 4 : 30.-4.júlí
Vika 5 : 7.-11.júlí
Vika 6 : 14.-18.júlí
Vika 7 : 21.-25. Júlí
Vika 8 : 28.-31.júlí (ath að við erum ekki föstudaginn 1.ágúst)

Leikjaskóli Fimleikadeildarinnar í Giljaskóla

Leikjaskólinn fer allur fram í íþróttasalnum við Giljaskóla. Mæting er við inngang fimleikadeildar.

Opnunartími er frá 8:00 til 12:00 alla virka daga.

Umsjónarmenn leikjaskóla eru Sonja Dags og Alexandra, skrifstofustjóri deildarinnar.

Skólinn er í boði fyrir hressa krakka fædd 2015-2018

Smelltu hér til að opna skráninguna á Abler

Dagskrá leikjaskólans er eftirfarandi
Vika 1 : 10.-13. júní
Vika 2: 16.-20. júní
Vika 3 : 13.-27.júní
Vika 4 : 30.-4.júlí