Þá er loksins komið að því að kynna til leiks Leikjaskóla KA sumarið 2025. Þeir verða tveir talsins. Annar þeirra haldinn af aðalstjórn KA og fer hann fram í Naustaskóla. Hinn er haldinn af fimleikadeild KA og er fjallað um hann í þessari frétt hér
Leikjaskóli KA í Naustaskóla:
Breytt snið verður á skólanum í ár, frá fyrri árum. KA verður með átta eins vikna námskeið, fyrsta námskeiðið hefst 10.júní. Fyrstu tvö námskeiðin eru bara fjórir dagar (9.júní skólaslit og 17.júní frídagur) og kosta þau því minna.
Öllum börnum sem æfa knattspyrnu hjá félaginu verður gefinn kostur á að fara á æfingu, annaðhvort á skólatíma eða þegar skólanum lýkur. Fá krakkarnir fylgd með starfsmönnum skólans.
Vika 1 : 10.-14.júní
Vika 2: 16.-20.júní (ath 17.júní er frídagur)
Vika 3 : 23.-27.júní
Vika 4 : 30.-4.júlí
Vika 5 : 7.-11.júlí
Vika 6 : 14.-18.júlí
Vika 7 : 21.-25. Júlí
Vika 8 : 28.-31.júlí (ath að við erum ekki föstudaginn 1.ágúst)
Nánari upplýsingar, um dagskrá og annað slíkt fæst í gegnum Sportabler þegar nær dregur.
Helstu upplýsingar:
Leikjaskólinn fer allur fram í íþróttahúsinu við Naustaskóla. Mæting er við inngang íþróttahússins.
Skólinn opnar 08:00 á morgnanna og er skólanum lokið 12:30 hvern dag.
Umsjónarmaður Leikjaskólans er Íris Rún Gunnarsdóttir
Skólinn er eingöngu fyrir krakka fædda 2014-2019
Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 100 börn - ekki er hægt að lofa aðgöngu fyrir börn umfram 100.
Smelltu hér til að skrá í og greiða fyrir leikjaskóla KA sumarið 2025.
Smelltu hér til að lesa frekari upplýsingar um leikjaskóla Fimleikadeildar KA sumarið 2025.