Leikjaskóli KA sumarið 2026 í Naustaskóla

Það er líf og fjör í leikjaskólanum í Naustaskóla
Það er líf og fjör í leikjaskólanum í Naustaskóla

Eins og undanfarin ár verður KA með leikjaskóla í boði fyrir hressa krakka og verður KA áfram með tvo leikjaskólar í boði. Aðalstjórn KA heldur leikjaskóla í Naustaskóla og þá er fimleikadeild KA með leikjaskóla í Giljaskóla en hann verður kynntur á næstu dögum.

Leikjaskóli KA í Naustaskóla:

Sama snið verður á leikjaskólanum í Naustaskóla og í fyrra en KA verður með átta eins vikna námskeið, fyrsta námskeiðið hefst 9. júní. Fyrstu tvö námskeiðin sem og það síðasta eru bara fjórir dagar (9. júní skólaslit, 17. júní frídagur og 31. júlí föstudagur fyrir versló) og kosta þau því minna.

Öllum börnum sem æfa knattspyrnu hjá félaginu verður gefinn kostur á að fara á æfingu, annaðhvort á skólatíma eða þegar skólanum lýkur. Fá krakkarnir fylgd með starfsmönnum skólans.

Vika 1 : 9. - 12. júní (4 dagar)
Vika 2: 15. - 19. júní (4 dagar)
Vika 3 : 22. - 26. júní
Vika 4 : 29. júní - 3. júlí
Vika 5 : 6. - 10. júlí
Vika 6 : 13. - 17. júlí
Vika 7 : 20. - 24. júlí
Vika 8 : 27. - 30. júlí (4 dagar)

Verð fyrir hverja viku er 11.500 kr fyrir utan þær vikur sem eru 4 dagar en þær kosta 9.900 kr

Nánari upplýsingar, um dagskrá og annað slíkt sem og skráning fæst í gegnum Sportabler þegar nær dregur.
Athugið að fréttin verður uppfærð með hlekk á Sportabler þegar opnað verður fyrir skráninguna.

Helstu upplýsingar:

Leikjaskólinn fer allur fram í íþróttahúsinu við Naustaskóla. Mæting er við inngang íþróttahússins.

Skólinn opnar 08:00 á morgnanna og er skólanum lokið 12:30 hvern dag.

Skólinn er eingöngu fyrir krakka fædda 2015-2020

Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 100 börn - ekki er hægt að lofa aðgöngu fyrir börn umfram 100.