Á föstudag fór fram lokahóf yngri flokka, að vanda voru þeir leikmenn sem skarað hafa framúr verðlaunaðir, skemmtiatriði haldin og boðið upp á veitingar. Mætingin á lokahófið var mjög fín og var gaman að sjá foreldra og systkini mæta með þessum ungu leikmönnum. Um 220 krakkar æfðu með KA í vetur.