Markalaust jafntefli í leik KA og Grindavíkur

KA tók á móti Grindavík á Nývangi í kvöld og gerði markalaust jafntefli. Veðrið var ekki hagstætt, norðangarri og kalt. Bæði liðin áttu góða spretti í leiknum og áttu KA menn nokkur góð færi undir lokin. Leikmaður Grindavíkur Orri Hjaltalín var rekin útaf með rautt spjald í seinni hálfleik.

Áhorfendur voru fáir sökum veðurs, nánari umfjöllin er væntanleg á fótboltasíðu. 

Næsti heimaleikur KA  er eftir tvær vikur, fimmtudaginn 1. júní.