Marteinn Friðriksson, fyrrverandi formaður og heiðursfélagi KA, lést þann 18. apríl sl. Knattspyrnufélag Akureyrar þakkar þessum fyrrverandi formanni sínum fyrir störf hans í þágu félagsins og áratuga tryggð við KA. Marteinn verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag, 29. apríl.
Við sendum aðstandendum Marteins kveðjur og vottum þeim samúð okkar