Minning um dyggan stuðningsmann KA - Sigfríð Ingólfsdóttir

Knattspyrnufélag Akureyrar minnist með hlýhug og þakklæti Sigfríðar Ingólfsdóttur sem lést nýverið, 73 ára að aldri.

Sigfríður var dyggur stuðningsmaður KA um áratuga skeið og fastagestur á leikjum félagsins. Hún var einnig landsþekkt sem einn ötulasti stuðningsmaður Arsenal á Íslandi og vakti heimili hennar við Aðalstræti gjarnan athygli enda skreytt litum KA. Sigfríður lét sig KA einnig miklu varða og studdi sitt lið í blíðu og stríðu.

Hún var fastagestur á leikjum KA í gegnum tíðina og fylgdist af miklum áhuga með gengi félagsins og liða þess.

Leikmenn KA munu leika með sorgarbönd í næsta leik félagsins gegn Val til að heiðra minningu Sigfríðar og þakka henni fyrir tryggðina og stuðninginn við félagið í gegnum tíðina.

KA sendir börnum hennar, fjölskyldu og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Sigfríðar Ingólfsdóttur.