Þótt að framkvæmdum á vallarsvæði K.A. hafi verið hætt í síðustu viku þá standa yfir framkvæmdir
innanhúss.
Þessa dagana er verið að setja upp auka skrifstofu í þar sem áður var hálfgerð setustofa og sjónvarpshorn (og svo fyrir langa löngu
afgreiðsla Púls 180 (takk Bögga) ).
Fyrirhugað er að blak og handbolti fái þarna aðstöðu fyrir skrifstofu og fundarhöld. Júdódeild tekur yfir aðstöðuna við
hliðina á júdósalnum, þar sem handboltinn hafði áður aðstöðu, en fótboltinn heldur sínum skrifstofum í
félagsheimilinu.