N1 og KA gera samstarfssamning

Við undirritun samstarfssamningsins í gær. Frá vinstri: Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri knattspy…
Við undirritun samstarfssamningsins í gær. Frá vinstri: Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar KA, Tómas Lárus Vilbergsson, formaður knattspyrnudeildar KA, Ómar Jóhannsson, rekstrarstjóri þjónustustöðva og Sigurður Sigfússon, kynningarfull
N1 og Knattspyrnufélag Akureyrar hafa gert með sér víðtækan samstarfssamning sem kveður á um að N1 verður aðalstyrktaraðili knattspyrnudeildar KA til og með árinu 2010. Samningurinn tekur til meistaraflokks karla, 2. flokks karla og 3. flokks karla og jafnframt N1-mótsins í knattspyrnu fyrir fimmta aldursflokk fyrstu helgina í júlí.
Samningurinn var undirritaður í KA-heimilinu í gær, en eins og kunnugt er stendur N1-mót KA nú yfir á KA-svæðinu.