05.09.2007
Á föstudag verður sannkallaður nágrannaslagur á Akureyrarvellinum í þriðja flokki karla en þá mætast KA og Þór í undanúrslitum Íslandsmótsins.
Þórsarar lentu í öðru sæti í A-deildinni en KA-menn unnu B-deildina. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Fjölnir og Keflavík.
Leikurinn fer fram eins og áður segir á Akureyrarvellinum á föstudag og mun Bjarni Hrannar Héðinsson, dómari leiksins, flauta til leiks kl. 17.30.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla KA-menn til að mæta á þennan erkifjendaslag en liðið sem sigrar fer í úrslitaleik Íslandsmótsins.