Norðurorka úthlutaði veglegum styrkjum til samfélagsverkefna árið 2026 við hátíðlega athöfn í menningarhúsinu Hofi í gær. Markmið með styrkjunum er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.
KA hlaut tvo styrki úr sjóðnum að þessu sinni, aðalstjórn KA fékk styrk vegna Allir Með framtaksins sem stuðlar að íþróttaæfingum fyrir börn með sérþarfir. Markmið framtaksins er að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nær umhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir - með viðeigandi aðlögum auk þess að allir skulu eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap.
Þá fékk knattspyrnudeild KA styrk vegna kaupa á æfingabúnaði sem mun koma sér ansi vel í okkar metnaðarfulla starfi.
Við þökkum Norðurorku kærlega fyrir styrkinn og þeirra glæsilega framtak sem svo sannarlega skiptir sköpum í samfélaginu okkar öllu hér á Norðurlandi en alls fengu 40 samfélagsverkefni styrk að þessu sinni.