Nýárskveðja frá formanni

Hrefna G. Torfadóttir formaður KA
Hrefna G. Torfadóttir formaður KA

Gleðilegt nýtt ár kæru KA félagar og takk fyrir árið sem var að líða. Í upphafi nýs árs er gjarnan staldrað við og litið til baka. Þegar ég lít til baka og horfi á starfið í deildunum hjá okkur fyllist ég stolti. Metnaðarfullt starf er unnið í öllum deildum, fjöldi barna og unglinga leggja stund á íþróttir hjá okkur, eina eða fleiri. Mælikvarðinn er ekki einungis hve margir titlar vinnast hjá hverri deild á ári hverju heldur ekki síður sá fjöldi sem stundar íþróttir í hverri deild. Að hvetja börn og unglinga til að stunda íþróttir og hlúa að þeim svo þeim sé það mögulegt er ekki bara einhver besta uppeldisaðferð sem til er heldur hefur það einnig mikið forvarnargildi. Þá má ekki gera lítið úr félagslega þættinum. Margir eignast sína bestu vini í gegnum íþróttaiðkun og það að stunda íþróttir í hóp eða að æfa sem einstaklingur með öðrum er bæði þroskandi og gefandi.

Það var með hrærðum huga sem ég tók við höfðinglegum styrk frá Samherja úr hendi Helgu Steinunnar Guðmundsdóttir þann 29. desember sl.. Ég er hrærð yfir höfðingskap Samherja og velvild þeirra til félagsins en ég er einnig stolt yfir því að Samherji, þessi máttarstólpi okkar samfélags, skuli meta starf okkar þannig að þeir sýni okkur slíkan höfðingskap.

Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni veitti Samherji styrk til barna- og unglingastarfsins, styrk sem skal varið til þess að niðurgreiða æfingagjöld iðkenda í yngri flokkum og/eða lækka ferðakostnað þeirra. Einnig var veittur styrkur til meistaraflokka félagsins. Ég færi Samherja mínar bestu þakkir.

Góðir KA félagar að lokum langar mig til að staldra svolítið við félagsstarf utan íþróttaiðkunar. Þegar ég lít enn til baka sé ég að þar megum við gera bragarbót. Látum eitt af áramótaheitum okkar vera að efla félagsstarf meðal almennra félagsmanna. Við skulum muna að ,, Maður er manns gaman”.

Lítum björtum augum á nýbyrjað ár.

Bestu kveðjur

Hrefna G. Torfadóttir

formaður KA