Nýja heilsuræktin í KA - Heimilinu formlega opnuð á laugardag!

Ný heilsurækt okkar KA manna verður opnuð með formlegum hætti n.k. laugardag. Var ákveðið að búa til smá stemmingu í kringum þetta og verður öllum félagsmönnum af þessu tilefni boðið í mjólkurgraut, slátur og blöðmör frá kl 11:30 á laugardaginn. Það er gamall siður að hafa graut í hádeginu á laugardögum og þótti þetta við hæfi. Heilsuræktinni verður síðan gefið nafn og verður skjöldur með nafni hennar afhjúpaður. Eftir athöfnina verður svo öllum boðið upp á kaffi, safa og kex. Nú er um að gera fyrir alla KA menn að líta við upp í KA, fá sér graut, ræða málin og þétta raðirnar. Áfram KA!