Nýja heilsuræktin heitir Nellabað!

Potturinn í Nellabaði
Potturinn í Nellabaði
Í gær, þann 6. nóvember, var nýja heilsuræktin í KA - heimilinu opnuð formlega. Um er að ræða aðstöðu með glæsilegum heitum potti, gufubaði og ísbaði. Ákveðið var að nefna heilsuræktina eftir stuðningsmanni KA nr. 1 Níelsi Halldórssyni heitnum.


Áhuga Nella á KA toppa fæstir en hann fylgdist bókstaflega með öllu sem gerðist innan félagsins. Hvort sem það var kvennaleikur í blaki eða leikur í 5. fl karla í fótbolta, Nelli var mættur að fylgjast með og styðja sitt félag. Hann var góður við öll börnin í félaginu og hafa margir þegið gotterí vasa úr hans í gegnum tíðina, m.a. undirritaður. Nelli átti einnig heiðurssæti í KA - heimilinu á handboltaleikjum félagsins, en hann sat iðulega fremst alveg við hliðarlínuna og studdi strákana sína. Það sem kannski merkilegast er að hans stuðningur var alltaf jákvæður og ef ílla gekk flaug frekar frasinn „strákar/stelpur upp með spilið!“ frekar en eitthvað neikvætt. Svo sannarlega frábær maður þar á ferð sem allir í KA þekkja. Nú er gott að minning hans sé varðveitt innan heimilisins svo að komandi KA kynslóðir heyri um þennan mann og taki hann sér fyrirmyndar, þessa jákvæðni og óbilandi trú á félaginu.

Í gær var svo Nellabaðið opnað formlega og var þá KA - mönnum boðið í mjókurgraut og slátur. Síðan var haldið niður og bráðabirgðarskilti með nafni heilsuræktarinnar afhjúpað en verið er að skera út skjöld sem verður settur upp síðar í vikunni. Gunnar Níelsson, Gunni Nella, sonur Nella fór með nokkur orð við opnun Nellabaðs og las m.a. uppúr gömlum dagbókum sem innhalda úrslit leikja og vangaveltur um klúbbinn. Þar er mörg gullkornin greinilega að finna. Við heimasíðuna sagði Gunni þetta; „Fjölskyldan er afar þakklát þessum sóma sem minningu pabba er sýnd, kunnum virkilega vel að meta og þykir vænt um.“

Hægt er að kaupa árskort í Nellabað í afgreiðslu KA - Heimilisins. Í Nellabað eru allir KA menn velkomnir!

Hér eru myndir frá opnuninni.