Nýtt Íslandsmet hjá Alex og Bikarmeistaratitill í hús

Alex Bikarmeistari 2026
Alex Bikarmeistari 2026

KA-maðurinn Alex Cambray Orrason bætti sitt eigið Íslandsmet í hnébeygju þegar hann varð bikarmeistari á Bikarmeistaramótinu í kraftlyftingum með búnaði sem fram fór um helgina. Mótshaldari var Lyftingadeild Stjörnunnar og keppt var í Miðgarði í Garðabæ.


Mótið var fámennt en góðmennt og einkenndist af frábærum anda, bæði meðal keppenda og áhorfenda. Þar átti Alex stóran leik þegar hann steig inn á pallinn í hnébeygjunni og lyfti 358 kg – 0,5 kg umfram sitt eigið Íslandsmet, sem hljóðaði upp á 357,5 kg frá því á Evrópumótinu í Pilsen fyrr á árinu. Með þessu tryggði hann sér jafnframt bikarmeistaratitilinn en þetta er annað árið í röð sem hann stendur uppi sem sigurvegari á mótinu.


Þetta er nýjasta afrekið á glæsilegum ferli Alex, sem hefur um árabil verið í fremstu röð íslenskra kraftlyftingamanna. Hann var kjörinn íþróttamaður KA árið 2024, hefur keppt á þremur heimsmeistaramótum og sjö Evrópumeistaramótum, meðal annars unnið til silfurverðlauna á EM, og hafnaði í 9. sæti á HM síðastliðið haust.


Heimasíðan óskar Alex innilega til hamingju með frábæran árangur og nýtt Íslandsmet!
Upplýsingar úr frétt: Kraftlyftingarsamband Íslands