Óbrjótanlegi KA bollinn tilbúinn til afhendingar

Ekki missa af þessum magnaða bolla, skráðu þig sem félagsmann í KA og greiddu félagsgjaldið
Ekki missa af þessum magnaða bolla, skráðu þig sem félagsmann í KA og greiddu félagsgjaldið

Hinn glæsilegi og óbrjótanlegi KA bolli sem fylgir félagsgjaldi KA í ár er mættur í KA-Heimilið og geta félagsmenn KA sem hafa greitt félagsgjaldið í ár komið og sótt bollann sinn í afgreiðslu KA-Heimilisins.

Ef þú átt eftir að ganga frá skráningu eða greiðslu á félagsgjaldinu þá hvetjum við þig eindregið til að ganga frá því sem fyrst svo þú missir ekki af þessum glæsilega bolla. Hægt er að greiða einstaklingsgjald upp á 6.500 kr eða sérstakt fjölskyldugjald sem er 15.000 kr en með fjölskyldugjaldinu fylgja tveir bollar.

Aðalstjórn KA samþykkti að félagsgjöld félagsins árið 2025 verði 6.500 kr og samkvæmt lögum félagsins ber félagsmönnum að greiða félagsgjald. Með félagsgjaldinu í ár mun fylgja glæsilegur KA bolli, óbrjótanlegur líkt og KA menn eru.

Í ár hefur Aðalstjórn einnig ákveðið að bjóða uppá fjölskyldugjald og er þá greitt 15.000 kr fyrir fjölskyldu og verða þá börn með sama lögheimili sjálfkrafa félagsmenn. Með fjölskyldugjaldi fylgja tveir glæsilegir KA bollar.

Félagsgjöldin skipta sköpum fyrir rekstur félagsins og þau eru mikilvæg fyrir uppbyggingu félagsins. Skráning í KA og greiðsla félagsgjaldsins fer í gegnum ka@ka.is

Félagsmenn sem skráðu sig og greiddu félagsgjaldið fyrir árið 2024 þurfa ekki að skrá sig á nýjan leik. Greiðsluseðill verður sendur til þeirra. Athugið að ef einhver vill breyta stöku félagsgjaldi yfir í fjölskyldugjald er hægt að hafa samband við gauti@ka.is

Senda þarf nafn félagsmanns og félagsmanna ef um fjölskyldu er að ræða, ásamt kennitölum félagsmanna og kennitölu greiðanda.

Einnig má koma í kaffi í KA heimilinu okkar og ganga frá gjaldinu hjá Gauta.