Óli Klöru og Svanni heiðraðir

Svanni og Óli klöru
Svanni og Óli klöru
S.l. miðvikudag voru þeir Óli Klöru og Svanni, miklir KA - karlar, heiðraðir á hátíðarathöfn tengdri kjöri á Íþróttamanni Akureyrar. Við þetta tækifæri tók Gunnar Níelsson saman stuttan pistil um þá félaga sem hafa gert ófáa greiða fyrir félagið í gegnum tíðina.

Óli Klöru og Svanni - demantar KA.

Siguróla M Sigurðsson eða  Óla Klöru þekkja allir sem komið hafa nálægt KA eða KA svæðinu s.l hálfa öld eða jafnvel lengur.  Siguróli lék  knattspyrnu með KA í mörg ár sat í stjórn knattspyrnudeildar lengi og  hefur verið ötull starfsmaður á öllum fyrst Essómótum KA og eftir nafnabreytingu þá N1 móti KA. Hann er alltaf  tilbúinn til þess að starfa fyrir félagið sitt.

Siguróli er einn af demöntum KA.

Jóhann Aðalsteinsson er maður sem hefur helgað KA stóran hluta æfi sinnar, Jóhann tók mjög stóran þátt í vallargerð á KA-svæðinu og er óhætt að fullyrða að án hans kunnáttu og þekkingar á málum hefði verið erfiðara að koma upp því glæsilega svæði sem KA hefur yfir að ráða í dag. Vel var vandað til verka og býr svæðið tvímælalaust enn þann dag í dag að fyrstu gerð í þeim efnum. Einnig var hann í byggingarnefnd KA-heimilisins, og vann gríðarlega mikið og gott starf á þeim vettvangi.

Svanni eins að flestir kalla hann hefur einnig verið mjög ötull við vinnu á Essó og nú N1 mótum knattspyrnudeildar, þá  í slagtogi við vin sinn og félaga Óla Klöru.

Svanni er eins og vinur hans Óli Klöru einn af demöntum KA.