Opinn kynningarfundur um málefni KA var haldinn 1 október sl.

Frá fundinum
Frá fundinum

Aðalstjórn KA boðaði til fundar um samninga við Akureyrarbæ sem voru gerðir í sumar. Á fundinn mætt um 40 félagsmenn og fundarstjóri var Viðar Sigurjónsson starfsmaður ÍSÍ á Akureyri.

Gunnar Jónsson framkvæmdastjóri KA gerði grein fyrir samningunum sem eftirfarandi.

Í fyrstalagi er að ræða endurnýjun og framlengingu á rekstararsamningi sem gildir núna til ársins 2010. Samningurinn felur í sér hækkun á rekstarstyrk til reksturs valla og til reksturs skrifstofu og framkvæmdstjóra, samtals er hækkunin uppá 2,5 milljóna króna. Þetta mun auðvelda til muna rekstur félagsins á næstu árum.

Hinn samningurinn er um framkvæmdir á vallarsvæði KA á næstu árum. Gert er fráð fyrir að hafist verði handa haustið 2008 með því að aðalvöllur vestan íþróttahúss verði gerður að gerfigrasvelli með hitalögn og flóðljósum.
Þá er einnig gert ráð fyrir að jarðvegsskipti eigi sér stað á svokölluðum "Wembley" sem er sunnan við félagsheimilið. Þessum framkvæmdum á að vera lokið vorið 2009 og er áætlaður kostnaður við þessar framkvæmdir er um 171 milljón.

Þá er gert ráð fyrir því að stúka verði reyst á árunum 2010 - 2012 og verði hún norðan við aðalvöll.

Tölverðar umræður um samningana, t.d. sköpuðust miklar umræður um ágæti gerfigras á aðalvöllinn. Fundurinn þótti takast mjög vel og ljóst er að framhald verður á almennum fundum um málefni félagsins.