Opna Dorramótið 27. desember

Fótboltinn er æðisgengið áhugamál
Fótboltinn er æðisgengið áhugamál

Mótið er haldið til heiðurs og minningar Steindórs Gunnarssonar sem var mikill KA-maður. Steindórs eða Dorra eins og hann var kallaður verður ætíð minnst sem eins harðasta KA-manns allra tíma. Hann unni félaginu af heilum hug og lagði því til ómælda vinnu, sem aldrei verður fullþökkuð.

Skráning er hafin fyrir Opna Dorramótið 2015 sem er innanhúsmót í KA-heimilinu. Mótið fer fram 27. desember og er frá kl 14:00 til 18:00. Í mótslok er boðið upp á pizzu og geta menn keypt sér drykki.

Skráning er til 26. des - fyrstir koma, fyrstir fá! 

Lið:
* 4-8 leikmenn
* aldurstakmark er 20 ára
* 4 inná í einu
* 2000 kr per þátttakanda
* Hámarks liðafjöldi eru 10 lið

Skráning með að smella hér!

Greitt verður á staðnum þátttökugjald