Örfréttir KA vikuna 14.-20. mars

Hér koma örfréttir vikunnar frá KA-heimilinu.

Almennt

  • Konukvöldi KA hefur verið frestað til 16. apríl. Miðasala enn í fullum gangi.
  • Herrakvöldið er 2. apríl – miðasala hefst fljótlega!
  • Næringafræðifyrirlestur, sem átti að vera núna á fimmtudaginn, hefur verið færður fram á þriðjudag, sem er 22. mars og hefst hann kl. 20:00. Ásgeir Ólafsson mun flytja fyrirlesturinn en hann er þjálfari til 28 ára. Hann ætlar að fjalla um heilbrigði í matarvenjum og hvernig þú getur náð verulegum árangri með venjulegum mat framar fæðubótarvörum. Ásgeir skrifaði metsölubókina Létta leiðin og hefur komið víða fram sem fyrirlesari eftir útgáfu hennar.
  • Nú stendur skráning sem hæst í Arsenalskólann – nánari upplýsingar má finna á www.ka.is/arsenal

Fótbolti

  • Goðamótið í 6. flokki karla fór fram um helgina í Boganum. KA vann í B, D, F og H deildum. Öll KA-liðin nema eitt, sem féll út á hlutkesti, náðu á verðlaunapall og er það stórkostlegur árangur. KA var með 10 lið á mótinu!
  • KA lék tvo æfingarleiki í liðinni viku í meistaraflokki. KA vann KF á miðvikudaginn 8-0 í Boganum og vann svo Völsung 6-0 á föstudaginn á KA-velli. Næsti leikur KA er gegn Selfoss í Lengjubikarnum á laugardaginn kl. 15:00. Sá leikur er skráður í Bogann en það gæti verið að hann færi fram á KA-velli, fylgist vel með á heimasíðu KA.
  • Saga Líf Sigurðardóttir var valinn í lokahóp U17 fyrir milliriðla í Evrópumótinu sem fram fer í Serbíu! Til hamingju með það Saga.

 Handbolti

  • Gríðarlega stór hópur iðkenda frá KA lagði af stað í suðurferð á föstudagsmorgun. Hinsvegar lokaðist Holtavörðuheiðin skjótt og var öllum rútunum snúið við í Staðarskála. Hálfgerð fýlu-ferð en við setjum öryggið í fyrsta sæti.
  • 4. flokkur karla vann Þrótt á sunnudaginn í KA-heimilinu en 3. flokkur karla beið lægri hlut fyrir FH, sama dag. Þeir töpuðu einnig gegn Stjörnunni á föstudaginn.
  • 2. flokkur Akureyri Handboltafélags sigraði Stjörnuna síðasta laugardag í KA-heimilinu. Strákarnir spila þrjá heimaleiki núna um helgina, gegn Víkingi föstudaginn 18. mars klukkan  19:30 í KA heimilinu og tvo leiki gegn Gróttu á laugardaginn klukkan 12:45 og 14:30 í Höllinni.
  • Meistaraflokkur Akureyrar mætir ÍBV sunnudaginn 20. mars klukkan 16:30 í KA heimilinu. Þetta er leikur sem var frestað um síðustu helgi.
  • Á föstudaginn 18. mars leikur 4. flokkur karla gegn Völsungi í KA-heimilinu kl. 17:00 og á sunnudaginn er einn leikur þegar 3. flokkur karla tekur á móti Gróttu kl. 13:00

Blak

  • Einn leikur átti að fara fram um helgina í blaki en var frestað vegna veðurs.
  • Nú er loksins komið að stóru bikarhelginni í blaki þegar bæði karla og kvennalið KA etja að kappi í undanúrslitum bikarkeppni BLÍ á laugardaginn í Laugardalshöll. Karlaliðið leikur kl. 16:00 gegn HK en kvennaliðið gegn Aftureldingu kl. 12:00! Við hvetjum alla KA menn sem vettlingi geta valdið að mæta í höllina og hvetja okkar lið!