Hér koma örfréttir KA vikuna 17.-23. maí. Örfréttir eru alltaf sendar út á mánudögum á póstlista. Til þess að skrá sig á póstlista má hafa samband við Siguróla siguroli@ka.is
Hér kemur stútfullur örfréttapakki úr KA-heimilinu vikuna 17.-23. maí
Almennt:
- Ágúst Stefánsson er tekinn til starfa á skrifstofu KA. Hann mun sjá um ýmis verkefni tengd N1-móti, heimildaöflun fyrir sögu KA, KA-TV, myndefni fyrir heimasíðu og önnur tilfallandi störf. Á næstu vikum og mánuðum fer hann að safna heimildum fyrir komandi 90 ára afmæli félagsins. Ef einhver félagsmaður liggur á þekkingu eða efni tengdu sögu KA hefur hann netfangið agust@ka.is og endilega takið honum vel ef hann leitar til ykkar varðandi þekkingu um klúbbinn okkar. Vertu velkominn til starfa Ágúst!
- Skráning í Íþrótta- og leikjaskóla KA er enn í fullum gangi. Fyrsta námskeiðið hefst strax eftir að skólanum lýkur eða 7. júní. Nánar inn á www.ka.is
Blak
- Tveir KA-menn voru valdir í lokahóp A-landsliðs karla í blaki. Það eru þeir Valþór Ingi og Ævarr Freyr. Til hamingju með það strákar. Þeir verða í eldlínunni í um helgina í Laugardalshöll í undakeppni HM!
Handbolti
- Lokahóf yngriflokka handboltans hjá KA verður á fimmtudaginn kl. 18:00 í KA-heimilinu. Veitt verða verðlaun fyrir veturinn og farið verður í leiki. Þá verður pizzuveisla frá Greifanum. Hlökkum til að sjá sem flesta
Fótbolti
- KA-dagurinn svokallaði hjá yngriflokkunum er á laugardaginn kl. 11:30 í KA-heimilinu. Grillaðar pylsur og svali, knattþrautir á gervigrasinu, leikmenn meistaraflokks kíkja í heimsókn, Toppmenn og Sport verða með kynningu á Diadora knattspyrnuvörum og KA-göllum. Þá mun einnig vera 15% afsláttur frá laugardegi til þriðjudags í toppmönnum og sport á Diadora-klæðnaði! Svo hefst leikur KA og Hugins kl 14:00 á KA-velli. Hlökkum til að sjá sem flesta!
- KA tekur á móti Huginn á laugardaginn kl. 14:00 á KA-velli. Við hvetjum alla til þess að flykkja sér á bakvið liðið og sýna því stuðning í verki eftir slæm úrslit gegn Haukum á laugardaginn var. KA er með 3 stig eftir 2 leiki í Inkasso-deildinni.
Leikurinn verður sýndur á KA-TV (youtube-rás KA) fyrir þá sem ekki komast á völlinn.
- Æfingar yngri flokka voru að hefjast eftir smá vorfrí en sumaræfingar hefjast formlega 6. júní næstkomandi. Mikið líf er á gervigrasinu okkar en ríflega 100 krakkar voru á vellinum áðan eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Það er gaman að sjá foreldra fylgjast með æfingum og eru foreldrar alltaf velkomnir inn í félagsheimili í kaffi!
- 2. flokkur karla lék 3 leiki fyrir sunnan um helgina. A-liðið gerði 1-1 jafntefli við FH en tapaði fyrir Stjörnunni. B-liðið gerði jafntefli við FH, 0-0. Um helgina leikur A-lið 3. flokks kvenna á Akranesi og 3. flokkur karla fer einnig suður með 2 lið og leikur gegn Fram og Aftureldingu.
- Þór/KA leikur sinn fyrsta heimaleik í Pepsi-deild kvenna í dag (miðvikudag) gegn ÍA kl. 18:00