Örlygur Þór Helgasson ráðinn framkvæmdastjóri KA

Árni og Örlygur nýráðinn framkvæmdastjóri K.A.
Árni og Örlygur nýráðinn framkvæmdastjóri K.A.
Eins og greint var frá í síðustu viku, þá lét Gunnar Jónsson af störfum framkvæmdastjóra þann 31. mars s.l. Gunnar hefur nú snúið til annara starfa eftir um 10 ár hjá félaginu.

Örlygur Þór Helgason hefur verið ráðinn í hans stað, Öggi eins og hann er yfirleitt kallaður hefur verið viðloðandi félagið lengi og er mikill fengur í honum. Hann hefur undanfarið starfað sem kennari hjá Brekkuskóla.

Á meðfylgjandi mynd sjást þeir Örlygur og Árni formaður handsala ráðningarsamningi.