Knattspyrnufélag Akureyrar var stofnað 8. janúar 1928 og fagnar því 100 ára afmæli að rúmu hálfu öðru ári liðnu. Af því tilefni hefur aðalstjórn KA ákveðið að gefa út 100 ára sögu félagins á bók á afmælisárinu. Á aðalfundi KA á dögunum var staðfestur samningur við Óskar Þór Halldórsson um ritun sögunnar og að hafa umsjón með útgáfu bókarinnar.
Hluti af sögu KA hefur nú þegar verið skrifaður. Jón Hjaltason sagfræðingur skrifaði bókina KA - Saga félagsins í 60 ár – 1928-1988 og tíu árum síðar var gefin út bókin KA 70 ára – myndir og sögubrot eftir Harald Sigurðsson. Saga síðustu áratuga hefur hins vegar ekki verið skráð á einn stað.
„Mér finnst ástæða til að hrósa aðalstjórn KA fyrir að ákveða að fara í þessa vinnu í tilefni af aldarafmælinu. Að mínu mati skiptir miklu máli fyrir hinna almenna félags- og stuðningsmann og alla þá sem hafa keppt í hinum ýmsum íþróttagreinum undir merkjum félagsins að halda sögunni vel til haga. Það er gömul saga og ný að það fennir ótrúlega fljótt í sporin og því er svo mikilvægt að safna heimildum áður en það verður of seint.
Það er að sönnu mikill heiður að vera falið það verkefni að skrifa aldarsögu KA enda er þetta mikil saga og samofin á svo margan hátt sögu Akureyrar á 20. og 21. öld. Þeir heiðursmenn Jón Hjaltason og Haraldur Sigurðsson hafa nú þegar tekið saman sögu fyrstu áratuganna í sögu KA og gert það vel. Það stendur því ekki til að endurskrifa það sem þeir hafa þegar skrifað enda engin ástæða til. Engu að síður felur verkefnið í sér að horfa heildstætt á þróun félagsins og sögu frá ýmsum sjónarhornum í eina öld, frá stofnun þess í janúar 1928 fram á afmælisárið 2028. Þar er heldur betur í mörg horn að líta.
Mér er það tilhlökkunarefni að takast á við þetta verkefni og leitast við að gefa mynd af hundrað ára sögu félagsins í máli og myndum. Til viðbótar við fyrirliggjandi prentuð gögn mun ég leita fanga hjá fjölda fólks sem ég veit að býr yfir áhugaverðum upplýsingum um hina og þessa þræði í sögu félagsins. Og ég þykist vita að fjölmargir sem ég veit ekki um búi yfir prentuðum gögnum og merkilegum hlutum úr starfi félagsins á síðustu áratugum sem gætu nýst mér í þessari vinnu. Ég biðla því til fólks sem telur sig búa yfir slíkum upplýsingum eða gersemum af ýmsu tagi að ganga úr skugga um hvað leynist í kössunum uppi á háalofti eða niðri í kjallara og hafa síðan samband við mig,“ segir Óskar Þór Halldórsson.