Á fimmtudaginn verður PubQuiz í KA-heimilinu. Quiz-ið hefst strax að loknum leik Akureyri Handboltafélags og ÍR, eða um 21:00.
Gestaspyrill er hinn geðþekki Einar Sigtryggsson og keppt verður í þremur hlutum og í hverjum hluta eru fast-5 og svo 10 hefðbundnar spurningar!
Tveir verða saman í liði og eru gríðarlega vegleg verðlaun fyrir efstu sætin. Það kostar 1000kr per haus að taka þátt. Veitingasala verður á staðnum og eins og áður segir eru allir boðnir hjartanlega velkomnir að spreyta sig á spurningum í þessu skemmtilega quiz-i. Þemað verður íþróttir, í bland við dægurefni.