Rakel Hönnudóttir Íþróttamaður Akureyrar 2008

Rakel Hönnudóttir, knattspyrnukona í Þór/KA er Íþróttamaður Akureyrar 2008. Önnur í kjörinu var Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíðakona í Skíðafélagi Akureyrar og í þriðja sæti var Bryndís Rún Hansen, sundkona í Óðni.


Sú niðurstaða að þrjár konur lentu í þremur efstu sætum í kjöri til Íþróttamanns Akureyrar er einstök í akureyrskri íþróttasögu. Þetta hefur aldrei gerst áður og raunar er ekki vitað til þess að það hafi áður gerst hér á landi við útnefningu íþróttamanns ársins að konur væru í þremur efstu sætunum.

Fjórtán aðildarfélög Íþróttabandalags Akureyrar tilnefndu íþróttamenn úr þeirra röðum til kjörs Íþróttamanns Akureyrar 2008. Stjórn ÍBA og fulltrúar fjölmiðla á Akureyri kusu síðan Íþróttamann Akureyrar úr þessum hópi glæsilegra íþróttamanna.

Rakel Hönnudóttir, knattspyrnukona í Þór/KA hefur verið í stöðugri framför undanfarin ár og hæst reis hennar frægðarsól á liðnu ári. Hún var fyrirliði meistaraflokks Þórs/KA, sem endaði í fjórða sæti Landsbankadeildarinnar sl. sumar. Þessi árangur undirstrikar þær miklu framfarir sem hafa orðið í kvennaknattspyrnunni á Akureyri á undanförnum árum. Rakel skoraði 20 mörk í Landsbankadeildinni sl. sumar og varð önnur markahæst í deildinni – á eftir Margréti Láru Viðarsdóttur. Og húnRakel stóð sig frábærlega á árinu í A-landsliði kvenna, sem svo eftirminnilega tryggði sér farseðilinn í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða í Finnlandi næsta sumar. Undir lok árs var Rakel kjörin íþróttamaður Þórs árið 2008.

Íþróttamaður Akureyrar var útnefndur í hófi sem Íþróttabandalag Akureyrar og Akureyrarbær efndu til í Ketilhúsinu í gærkvöld. Við það tækifæri var skrifað undir styrktarsamninga við nokkra unga og efnilega íþróttamenn á Akureyri – knattspyrnu-, frjálsíþrótta-, sund- og skíðamenn.

Þá heiðraði Íþróttaráð Akureyrar þrjá valinkunna einstaklinga fyrir framlag þeirra til íþróttastarfs á Akureyri í gegnum tíðina: Rebekku Guðmann, Samúel Jóhannsson og Sigrúnu Aðalsteinsdóttur – Sítu.

Fréttatilkynning frá Íþróttabandalagi Akureyrar


Konur voru í þremur efstu sætunum í kjöri Íþróttamanns Akureyrar 2008. Frá vinstri: Bryndís Rún Hansen, sundkona í Óðni, í þriðja sæti, Rakel Hönnudóttir, knattspyrnukona í Þór/KA, Íþróttamaður Akureyrar 2008 og Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíðakona í Skíðafélagi Akureyrar, í öðru sæti.