Rekstrarhagnaður hjá KA

Hrefna G. Torfadóttir formaður KA
Hrefna G. Torfadóttir formaður KA

Knattspyrnufélag Akureyrar var rekið með 5 milljóna króna hagnaði á síðasta rekstrarári. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins nú síðdegis. Hagnaður var af rekstri allra deilda félagsins nema handknattleiksdeildar, en þar var lítilsháttar tap. Þá var aðalstjórn félagsins rekin með hagnaði.

Fram kom í máli Gunnars Jónssonar, framkvæmdastjóra félagsins, þegar hann skýrði út reikninga þess, að gríðarlegs aðhalds hafi verið gætt í rekstrinum og það væri meðal annars lykillinn að því að tekist hafi að halda rekstrinum réttu megin við núllið. Gunnar þakkaði starfsfólki í KA-heimilinu fyrir sérlega gott samstarf á árinu, það hefði unnið sín störf af samviskusemi og árvekni.

Hrefna G. Torfadóttir, formaður KA,  flutti aðalfundinum eftirfarandi skýrslu stjórnar:

Fundarstjóri, góðir fundarmenn.
Ég vil í upphafi þessa fundar minnast tveggja góðra KA manna er létust á þessu ári. Jón Arnþórsson, fyrrverandi formaður KA, lést þann 23. janúar 79 ára að aldri. Steindór Gunnarsson, Dorri eins og við kölluðum hann, varð bráðkvaddur þann 19. mars á Kanarí. KA minnist þessara félaga sinna með vinsemd og virðingu og vottar fjölskyldum þeirra samúð sína.
Ég vil biðja fundarmenn að rísa úr sætum í virðingarskyni við þessa mætu félaga okkar.

Á framhaldsaðalfundi KA þann 13. apríl 2010 var Hrefna G. Torfadóttir kjörin formaður KA en auk hennar voru kjörin í stjórn:

Tryggvi Gunnarsson sem varð varaformaður
Sigríður Jóhannsdóttir sem varð gjaldkeri
Sigurður Kjartan Harðarson sem varð ritari
Sigurbjörn Sveinsson sem varð meðstjórnandi
Varamaður var kjörin Ragnheiður Júlíusdóttir

Formenn deilda sátu einnig í stjórn en þeir voru:
Gunnar Garðarsson, fyrir blakdeild
Erlingur Kristjánsson, fyrir handknattleiksdeild
Jón Óðinn Waage, fyrir júdódeild
Bjarni Áskelsson, fyrir knattspyrnudeild

Aðalstjórn hélt 14 bókaða fundi frá síðasta aðalfundi, með hlé í júlí og ágúst. Fyrst funduðum við einu sinni í mánuði á sunnudagsmorgnum, en svo var ákveðið í byrjun þessa árs að hittast á tveggja vikna fresti, að hafa fundina fleiri og styttri. Þeir hafa reyndar ekki orðið mikið styttri því um margt er að ræða og mikið að gerast hjá félaginu.

Í janúar sl. tilkynnti Tryggvi Gunnarsson, varaformaður, að hann hygðist hætta í stjórn félagsins af persónulegum ástæðum. Varaformaður í hans stað varð Sigurbjörn Sveinsson og kom þá varamaður aðalstjórnar, Ragnheiður Júlíusdóttir, inn sem aðalmaður.

Aðalstjórn KA þakkar Tryggva hans mikla og óeigingjarna starf fyrir félagið og ég veit, enda hefur hann líka sagt það, að hann er alls ekki hættur að starfa fyrir félagið.

Fjárhagsráð, sem skipað er í af aðalstjórn, var endurvakið og sitja í því Árni Jóhannsson, Eygló Birgisdóttir og Gunnar Kárason. Hlutverk fjárhagsráðs er m.a. að hafa eftirlit með fjárreiðum íþróttadeilda félagsins, að fylgjast með að reikningshald sé í lagi, að gera samanburð á áætlunum og rauntölum og að leggja fram tillögur til hagræðingar og sparnaðar. Ég vil þakka fjárhagsráði fyrir störf þeirra.

Síðastliðið sumar var leikjaskóli starfræktur eins og undanfarin ár. Hann var með sama sniði og sl. sumar, einungis var boðið upp á skólann hálfan daginn. Umsjónarmaður skólans var Jón Óðinn Waage.

KA ákvað að halda gjöldum í lágmarki eins og sumarið á undan og tókst það vegna veglegs styrks frá Samherja og var aðsókn að skólanum mjög góð. KA þakkar Samherja fyrir velvild þess í garð félagsins.

Framkvæmdum í kjallara lauk á sl. ári og hlaut aðstaðan í kjallaranum nafnið Nellabað í höfuðið á Níels heitnum Halldórssyni, mikilum og traustum KAmanni. Formleg opnun fór fram 6. nóvember og var boðið upp á mjólkurgraut og slátur af því tilefni. Gunnar Níelsson, sonur Nella, fór með nokkur orð við opnun Nellabaðs og las m.a. uppúr gömlum dagbókum Nella sem innihalda úrslit leikja og vangaveltur um klúbbinn. Óhætt er að segja að þar séu mörg gullkornin að finna. Einnig var viðstödd Sigurbjörg dóttir Nella, eða Bögga eins og við köllum hana flest, svo og fjölskylda Gunna Nella.

Sl. sumar lék meistaraflokkur KA í knattspyrnu heimaleiki sína á Akureyrarvelli. Haustið áður hafði verið unnið að framkvæmdum við völlinn til að lagfæra sigin horn og ýmsar lagfæringar voru gerðar umhverfis völlinn sl. sumar.

Völlurinn sjálfur þarfnast lagfæringa, bráðnauðsynlegra lagfæringa, því dren er þar ekkert og ef við fáum rigningarkafla eins og á liðnu sumri þá liggur vatnið bara ofan á vellinum og hann því ill nothæfur og skemmist enn frekar.

Búið er að bjóða út viðgerðir á stúkunni á Akureyrarvelli og munu þær klárast næsta sumar.

Meirihlutinn í bæjarstjórn hefur ákveðið að leggja Dalsbrautina framhjá svæðinu okkar. Við vissum svo sem að það væri á stefnuskrá þeirra að leggja götuna í stokk meðfram KA svæðinu en Dalsbrautin hefur svo oft og svo lengi verið á stefnuskrá bæjarstjórna hér að það kom okkur eiginlega í opna skjöldu þegar við fréttum af því að nú ætti að verða af þessum framkvæmdum.

Við ákváðum samt að standa ekki úti á horni og hrópa heldur setjast niður og ræða málin. Staðan er sú, eins og ég sagði, að meirihlutinn í bæjarstjórn hefur ákveðið að þessi gata muni koma og því er miklu skynsamlegra og heillavænlegra fyrir félagið okkar að fara í viðræður og eiga gott samstarf við bæjaryfirvöld.

Nefnd á vegum aðalstjórnar hefur fundað með fulltrúum meirihlutans í bæjarstjórn um skipulagningu og uppbyggingu KAsvæðis með tilkomu væntanlegrar Dalsbrautar. Þær viðræður hafa verið vinsamlegar og má sjá hér á tjaldi tillögur KA að skipulagi svæðisins þegar Dalsbrautin verður komin.

KA vill þakka Akureyrarbæ og íþróttaráði fyrir gott samstarf.

Tekið var upp á þeirri nýbreytni hjá félaginu að kalla til fundar aðalstjórnar með stjórnum allra deilda og öllum þjálfurum. Fyrsti fundurinn var haldinn í maí, þá var grillað, farið yfir það helsta hjá félaginu og fleira. Á öðrum fundi í nóvember sl. var borðaður plokkfiskur og rúgbrauð og þá gerðu deildir grein fyrir starfsemi sinni í vetur. Þessir fundir eru bæði skemmtilegir og að mínu mati mjög nauðsynlegir því þarna hittast allir þeir sem reka og stjórna deildum félagsins og félaginu í heild.  Og öll höfum við það sama að markmiði að vilja hag félagsins sem mestan.

Á haustmánuðum fórum við Gunnar framkvæmdastjóri ásamt Sigfúsi formanni og framkvæmdastjóra Þórs til viðræðna við bæjarstjóra um vanefndir á greiðslu samningsbundinnar vísitölu til beggja félaganna. Þessi fundur var að frumkvæði okkar Gunnars.

Málið er nefnilega það að í desember 2008 ákvað síðasta bæjarstjórn að hætta að greiða samningsbundna vísitöluhækkun sem átt að koma til í janúar 2009. Þessi vísitölusamningur er í rekstrarsamningi félaganna.

Við höfum því verið að reka félagið á sömu krónutölu í rekstrarstyrk frá árinu 2008 og það sjá allir að í þessu árferði þá gengur það ekki upp til lengdar.

Við sátum einnig annan fund og þá með bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar. Þar ræddum við einnig um að við hér hjá KA erum með gamlan samning þar sem við erum einungis með 9 mánaða restrarstyrk sem endast á í 12 mánuði á meðan önnur félög eru með 12 mánaða rekstrarstyrk.

Af viðræðum við bæjarstjóra og forseta bæjarstjórnar var ljóst að við fengjum ekki leiðréttingu á greiðslu samningsbundinnar vísitölu og við erum enn að berjast í að fá breytingu á 9 mánaða greiðslunni í 12 mánuði. Við höfum einnig rætt það mál við formann íþróttaráðs.

Það er alveg ljóst að þótt tímarnir séu erfiðir þá þarf bæði að vera raunsæi og sanngirni í samskiptum íþróttafélaga og bæjarstjórnar. Við höfum sett fram óskir um að fá lagfæringu á rekstrarsamningi okkar; við viljum líka að sanngirnis sé gætt og að við sitjum ekki eftir í samanburði við önnur félög.

Í nóvember var undirritaður nýr samningur á milli KA og Þórs um Akureyri handboltafélag. Sá samningur er til 10 ára en verður endurskoðaður að fimm árum liðnum auk þess sem önnur endurskoðunarákvæði eru í honum.  Ég vil nota tækifærið hér og óska Akureyri handboltafélagi til hamingju með deildarmeistaratitilinn.

Í desember sl. tilkynni Samherji um veglegan styrk til barna og unglingastarfs.

Höfðinglegur styrkur Samherja á sl. ári til íþrótta barna- og unglinga varð til þess að hægt var að bjóða 8. flokk í knattspyrnu að æfa frítt og engin æfingagjöld voru heldur hjá yngri flokkum í júdo og blaki. Ferðakostnaður barna- og unglinga lækkaði hjá öllum deildum. Samherji lét ekki staðar numið þar heldur veitti einnig styrki til meistaraflokka félagsins. Við KA menn þökkum af alhug höfðingsskap og hlýhug Samherja í okkar garð.

Félagið gerði heildarsamninga bæði við Ölgerð Egils Skallagrímssonar og við KEA. KA þakkar báðum þessum aðilum góðan stuðning.

Í janúar sl. var haldið upp á 83. ára afmæli félagsins með veglegu Hnallþóruboði að hætti KA.

Annáll ársins var fluttur, Viðar Sigurjónsson fræðslufulltrúi ÍSÍ flutti tölu og síðast en ekki síst kom Helga Steinunn Guðmundsdóttir fyrrverandi formaður KA og ritari ÍSÍ og tilkynnti að KA hlotnaðist á ný sá heiður að verða fyrirmyndarfélag samtakanna. KA varð fyrst fyrirmyndarfélag árið 2007 til fjögurra ára og var þetta endurnýjun nú á þessari heiðursnafnbót.

Einnig og ekki síst var svo kynntur íþróttamaður KA árið 2010. Aðalstjórn ákvað að breyta til að þessu sinni. Einungis ein tilnefning kom frá hverri deild og var það íþróttamaður þeirrar deildar sem tilnefndur var. Áður höfðu ýmist ein eða tvær tilnefningar komið frá deildum og fannst okkur að það þyrfti að vera regla á þessu og að sá sem deildin tilnefndi væri sá íþróttamaður sem teldist hafa skarað fram úr.  Allir þeir íþróttamenn sem tilnefndir voru fengu bikar frá fyrrverandi formönnum félagsins þar sem á stóð t.d. handknattleiksmaður KA, júdómaður KA og svo framvegis. Einnig var afhendur svokallaður formannabikar en það er bikar sem fyrrverandi formenn veita þeim sem hlýtur nafnbótina íþróttamaður KA, svo og farandbikar frá KA sem íþróttamaður KA fékk afhentan.

Tilnefndir voru:

Frá blakdeild: Birna Baldurdóttir,
Frá handknattleiksdeild: Kolbrún Gígja Einarsdóttir
Frá júdódeild: Helga Hansdóttir.
Frá knattspyrnudeild: Sandor Matus

Íþróttamaður KA að þessu sinni varð Birna Baldursdóttir,

Í janúar sl.var einni haldið konukvöld KA, hið fyrsta um langan tíma. Það tókst alveg geysilega vel. Hér mættu rúmlega 50 konur og skemmtu sér hið besta. Ég vil þakka þeim konum sem sáu um að þetta konukvöld gæti orðið að veruleika. Það er ekki nokkur vafi í mínum huga að þetta hafi bara verið það fyrsta af mörgum sem koma munu. Það var svo gaman þarna.

Í byrjun þessa árs var samþykkt á aðalstjórnarfundi að stofnuð yrði félagsheimilisnefnd til að glæða lífi í bæði í félagsheimilið okkar og starf hins almenna félagsmanns. Sigurður og Sigurbjörn eru fulltrúar aðalstjórnar þar og prímus mótorar. Þeirra vinna hefur núna verið að fá fólk í nefndina og vonir standa til að nú á vormánuðum muni fjörið byrja.

Ég vil þakka Gunnari framkvæmdastjóra fyrir hans mikla og góða starf fyrir félagið og þakka honum sérstaklega fyrir okkar góða samstarf.

Ég vil einnig þakka öðru starfsfólki félagsins fyrir þeirra störf. Gott starfsfólk er okkur mikilvægt til þess að starfsemin hjá okkur gangi sem best.

Ég þakka einnig öllum sjálfboðaliðunum í stjórnum deilda og ráða og öðrum sem koma að starfsemi deilda. Það má ekki gleyma að þakka fyrir þann tíma og þá orku sem sjálfboðaliðar félagsins leggja af mörkum til félagsins. Einnig vil ég þakka þjálfurum allra deilda félagsins. Góðir þjálfarar, eins og við höfum hér, eru ekki síst ástæðan fyrir þeim mikla fjölda iðkenda sem við höfum.

Hér verður ekki fjallað um árangur flokka né rekstur deilda og vísast í ársskýrslur hverrar deildar sem finna má á heimasíðu félagsins.

Ég hef áður sagt að við eigum að halda utan um börnin okkar og unglingana og halda þeim sem lengst íþrótta- og félagsstarfi því það er þeim til hagsbóta. En það er heldur ekki spurning í mínum huga að gott félagsstarf með þátttöku hins almenna félagsmanns styrkir félagið og er einnig mikilvægt hverjum félagsmanni. Ég tel því að viðburðir eins og afmælisveisla, konukvöld, karlakvöld og það sem félagsheimilisnefndin mun finna upp á séu nauðsynlegir til að styrkja innviði félagsins. Ég vona líka að við getum haldið árshátíð áður en á allt of löngu líður. 

Við skulum hafa í huga hin fleygu orð Hávamála: Maður en manns gaman

Takk fyrir.

Í aðalstjórn KA fyrir næsta starfsár voru kjörin Hrefna G. Torfadóttir, Sigurbjörn Sveinsson, Sigurður Harðarson, Sigríður Jóhannesdóttir og Þorbjörn Haraldsson. Varamaður var kjörin Ragnheiður Júlíusdóttir.

Í stjórn Jakobssjóðs voru kjörnir Þormóður Einarsson, Vignir Þormóðsson og Magnús Sigurólason.

Endurskoðandi félagsins var kjörinn Davíð Búi Haraldsson.

Frétt: Óskar Þór

Myndir: Sigurður Þorri