Risa lyftingadeildarhelgi í Íþróttahöllinni um helgina

Lyftingadeild KA stendur fyrir glæsilegri lyftingaveislu í Íþróttahöllinni á Akureyri helgina 23. og 24. maí. Um er að ræða samstarfsverkefni lyftingadeildarinnar, Kraftlyftingasambands Íslands (KRAFT) og Lyftingasambands Íslands (LSÍ).

Það verður nóg um að vera og hvetjum við alla KA-menn og íþróttaáhugafólk til að mæta, styðja okkar fólk og upplifa kraftinn í keppendum. Margir iðkendur úr hinni öflugu Lyftingadeild KA taka þátt ásamt mörgum fleirum.

Laugardagur 23. maí: Byrjendamót í kraftlyftingum

Helgin hefst á kraftlyftingum þar sem byrjendamót í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu fer fram.

  • Vigtun hefst: kl. 10:45
  • Keppni hefst: kl. 12:45

Sunnudagur 24. maí: Sumarmót LSÍ & KA í ólympískum lyftingum

Á sunnudaginn færist fjörið yfir í ólympískar lyftingar á sumarmóti LSÍ og KA.

  • Vigtun hefst: kl. 10:45
  • Keppni hefst: kl. 12:45

Mót sem þessi verða ekki að veruleika án öflugra bakhjarla. Lyftingadeild KA færir helstu samstarfsaðilum sínum bestu þakkir fyrir stuðninginn við viðburðinn og uppbyggingu íþróttarinnar:

  • Múrlagerinn
  • Bílaleiga Akureyrar / Europcar
  • Sprettur-Inn
  • Greifinn Veitingahús

Allir velkomnir í Höllina og aðgangur er ókeypis.