Samantekt frá félagsfundi KA - 1. hluti

KA menn sýndu samstöðu og fjölmenntu á fundinn
KA menn sýndu samstöðu og fjölmenntu á fundinn

Aðalstjórn KA stóð fyrir opnum fundi í KA-heimilinu síðastliðinn miðvikudag. Þar fluttu Ingvar Már Gíslason, formaður og Eiríkur S. Jóhannsson varaformaður framsögu um rekstrarumhverfi félagsins og framtíðarhugmyndir um uppbyggingu á félagssvæði KA. 

KA menn létu sig ekki vanta, enda um mikilvæg málefni að ræða, og mættu ríflega 300 manns á fundinn.

Fram kom í máli Ingvars að KA hafi líklega aldrei staðið betur félagslega, enda hefur iðkendafjöldi vaxið um 57% frá árinu 2012 og voru iðkendur KA ríflega 1.700 talsins á árinu 2017. Verði þróunin sú sama og undanfarin ár má gera ráð fyrir því að iðkendur hjá KA verði orðnir yfir 2.000 á næstu 2-3 árum. 

Erfiður og flókinn rekstur

Jafnframt kom fram að rekstur félagsins er um margt flókinn og gerði Ingvar sérstaklega grein fyrir rekstri aðalstjórnar félagsins og því umhverfi sem félagið býr við í dag. Fram kom að taprekstur var á aðalstjórn á árinu 2017 og verði haldið áfram með sama hætti megi jafnframt búast við taprekstri á árinu 2018. Ástæðurnar eru fyrst og fremst þær að félagið hefur stækkað að umfangi og dugar fjárframlag Akureyrarbæjar samkvæmt rekstrarsamningi engan vegin til, til að standa straum af hækkandi rekstrar og launakostnaði við rekstur mannvirkja og skrifstofu félagsins. „KA veitir gríðarlega mikla þjónustu sem skilar sér margfalt til baka til samfélagsins. Ég er þess fullviss að samningur KA við Akureyrarbæ er margfalt meira virði fyrir bæinn en sú upphæð sem KA fær greidda árlega fyrir þjónustuna“ sagði Ingvar meðal annars í erindi sínu. 

Fundarmenn voru jafnframt upplýstir um að aðalstjórn hefði í langan tíma óskað eftir leiðréttingu á rekstrarsamningi fyrir árið 2018. Þær viðræður stæðu enn yfir en KA teldi að ójafnræðis gætti milli félagsins og annara íþróttafélaga þegar kæmi að rekstri þess, hvort sem litið er til daglegs reksturs eða rekstur íþróttamannvirkja. Allur samanburður sýndi að verulega hallaði á KA í fjárframlögum Akureyrarbæjar til íþróttafélaga og í raun væri KA að greiða með rekstrinum eins og staðan væri í dag.

Smelltu hér til að lesa annan hluta yfirferðarinnar

Smelltu hér til að lesa þriðja hluta yfirferðarinnar